Stress og stressleysi
03. desember 2008 klukkan 17:58
Fyrsta prófið af fjórum er á morgun... Skattaréttur..
Ég er búin að vera ósköp róleg í undirbúningi fyrir þetta próf.. og í dag líka þó að það sé orðið ansi stutt í prófið núna...
Helsta áhyggjuefnið er að prófið er kl 9:00 sem þýðir að ég þarf að drullast á lappir eldsnemma! Hef í vikunni ekki tekist að koma mér á lappir fyrr en svona 10-11 á morgnanna... Sem passar ágætlega, sólarupprás í dag var 10:52...
Afhverju getur maður ekki bara lagst í dvala þessa vetrarmánuði á Íslandi?
Geisp!

Liljan